Fotbolti.net
06.02.15 - 14:35
Magnús Már Einarsson

Viktor Smári Segatta og Björn Axel í Gróttu (Staðfest)

Viktor Smári Segatta og Hilmar Sigurðsson formaður knattspyrnudeildar Gróttu.

Viktor Smári Segatta og Hilmar Sigurðsson formaður knattspyrnudeildar Gróttu.

Canon

Mynd: Grótta

Framherjarnir Viktor Smári Segatta og Björn Axel Guðjónsson hafa gengið til liðs við Gróttu. Þetta kemur fram á vef félagsins.
Viktor er 22 ára gamall, uppalinn FH-ingur, en hefur síðustu ár leikið með Haukum og ÍR. Hann hefur verið til reynslu hjá Gróttu síðustu vikur og spilað vel í sigurleikjum á Aftureldingu og Víkingi Ó í Fótbolta.net mótinu.

,,Kristján Ómar aðstoðarþjálfari hringdi í mig fyrir nokkrum vikum og heyrði í mér hljóðið. Ég kom svo á æfingar og keppti með Gróttu í Fótbolta.net mótinu og líst mjög vel á allt hérna. Flottur klúbbur og margir toppmenn sem ég er að kynnast,\" sagði Viktor við heimasíðu Gróttu.

Björn Axel var á sínum tíma duglegur að skora fyirr Gróttu í yngri flokkunum en hann er nú kominn aftur til félagsins eftir þriggja ára dvöl í Vestmannaeyjum og Njarðvík. Síðastliðið sumar skoraði hann tólf mörk í 17 leikjum með Njarðvík.

Þá hefur fyrirliðinn Guðmundur Marteinn Hannesson skrifaði undir nýjan samning vði Gróttu.

Guðmundur var í liði ársins í 2. deild í fyrra og skoraði 7 mörk í 22 leikjum sem er ansi gott af varnarmanni að vera.

Heimild: Heimasíða Gróttu

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.