Real Madrid vill leikmenn Liverpool - Tonali efstur á óskalista Juve - Lewandowski gæti fengið nýjan samning
   fös 06. febrúar 2026 12:57
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tonali pirraður og orðaður í burtu
Mynd: EPA
Sandro Tonali, miðjumaður Newcastle, virðist vera pirraður á stöðu mála hjá Newcastle. Það heyrðist í honum fá útrás fyrir gremju sinni við starfsmann félagsins í kjölfar taps Newcastle gegn Manchester City í undanúrslitum deildabikarsins á miðvikudag. Það er The Sun sem segir frá.

Tonali var orðaður við Arsenal á gluggadeginum og í kjölfarið tjáði Eddie Howe, stjóri Newcastle, sig um mikilvægi Ítalans.

Newcastle hefur verið án Bruno Guimaraes og Joelinton í síðustu leikjum og sést það á leik liðsins að þeirra er saknað.

Manchester City, Juventus og Chelsea eru á meðal félaga sem fylgjast með stöðu mála hjá Tonali.

Hann er 25 ára og er algjör lykilmaður hjá Newcastle. Hann kom frá AC Milan sumarið 2023 en missti af nánast öllu tímabilinu 2023/24 þar sem hann fór í bann eftir að hafa brotið veðmálareglur.
Athugasemdir
banner