Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 06. mars 2021 20:20
Victor Pálsson
Cole: Trent virkar dauðþreyttur
Mynd: Getty Images
Ashley Cole, fyrrum bakvörður Englands, hefur gagnrýnt landa sinn Trent Alexander-Arnold sem spilar með Englandsmeisturum Liverpool.

Trent hefur verið gagnrýndur áður á þessu tímabili og átti ekki frábæran dag er Liverpool taoaði 1-0 gegn Chelsea á fimmtudag.

Að mati Cole þá virkar Trent dauðþreyttur í hægri bakverðinum og virkar á sama tíma latur vegna þess.

„Hann leit út fyrir að vera latur, hann virkar dauðþreyttur, Trent," sagði Cole á Sky Sports.

„Það er erfitt þegar það er breytt svo oft um liðsfélaga. Að mínu mati er hann aðeins opnari í einn á einn stöðum."

„Hann verður að bæta sig í þessum stöðum ef hann vill komast á toppinn og vera lykilmaður í fjögurra manna línu."
Athugasemdir
banner
banner
banner