Joachim Low, þjálfari þýska landsliðsins, fór og bankaði upp á heima hjá hinum 18 ára Jamal Musiala, leikmanni Bayern Munchen.
Musiala er einn efnilegasti leikmaður heims um þessar mundir en hann skrifaði nýlega undir sinn fyrsta atvinnumannasamning við þýsku risana.
Þessi sóknarþenkjandi miðjumaður gekk til liðs við undir 17 ára liðs Bayern frá Chelsea árið 2019 og í síðustu viku tilkynnti hann að hann muni spila fyrir Þýskaland í framtíðinni. Þetta kom þó nokkrum á óvart en hann á að baki leiki fyrir U17 og U21 ára landslið Englands.
Musiala fæddist í Þýskalandi og hann hefur tekið sú ákvörðun að spila fyrir landið. Þrátt fyrir það hafi hann enskt hjarta eftir að hafa spilað fyrir yngri landslið Englands.
Low hafði mikil áhrif á ákvörðun Musiala og nú hefur það komið fram að hann ákvað að kíkja í heimsókn til Musiala og sannfæra hann um að velja Þýskaland. Það hefur virkað vel hjá Low.
Athugasemdir