21.09.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sveindís innsiglaði sigurinn gegn níu leikmönnum Utah

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Sveindís Jane Jónsdóttir var í byrjunarliði Angel City sem vann 3-0 sigur á Utah Royals í bandarísku kvennadeildinni í nótt.
Tveir leikmenn Utah fengu rautt spjald í fyrri hálfleik og Angel City var með 1-0 forystu. Liðið skoraði annað mark leiksins strax í upphafi seinni hálfleiks.

Sveindís innsiglaði sigurinn með marki á 67. mínútu.
Hún vann boltann af varnarmanni við vítateig Utah og eftirleikurinn var auðveldur.
Angel City er í 6. sæti með 39 stig eftir 25 umferðir.