Fotbolti.net
06.03.26 - 11:10
Elvar Geir Magnússon

Fimm stjórar sem gætu tekið við Tottenham núna ef Tudor verður rekinn

Igor Tudor.

Igor Tudor.

Canon

Mynd: EPA

Stjóraskipti Tottenham hafa gert illt verra en Igor Tudor sem var ráðinn til bráðabirgða hefur farið herfilega af stað og margir vilja meina að spilamennskan hafi versnað.

Tottenham hefur tapað öllum þremur leikjunum undir stjórn Króatans og þegar er farin umræða af stað um að hann verði rekinn.
Verður Tudor látinn taka pokann sinn strax?
TENGT EFNI

Verður Tudor látinn taka pokann sinn strax?

Tottenham er stigi fyrir ofan fallsæti og hætta á að liðið verði í Championship-deildinni á næsta tímabili.

Mauricio Pochettino er sagður efstur á óskalista Tottenham sem næsti stjóri en hann stýrir nú bandaríska landsliðinu og verður ekki laus fyrr en eftir HM í sumar.

Mirror tók saman lista yfir fimm stjóra sem gætu stokkið inn og tekið við Tottenham núna og stýrt liðinu út tímabilið ef Tudor fær sparkið.

Mynd: EPA

Ryan Mason
Fyrrum leikmaður Tottenham hefur áður stokkið inn þegar á hefur þurft að halda. Tók við til bráðabirgða þegar Jose Mourinho og Cristian Stellini voru látnir taka pokann sinn. Er fyrrum stjóri West Bromwich Albion.

Mynd: EPA

Harry Redknapp
Fyrrum stjóri Tottenham er 79 ára og er hættur í þjálfun en gæti líklega verið klár í að stökkva inn til að aðstoða félagið.

Mynd: EPA

Robbie Keane
Þessi fyrrum leikmaður Tottenham stýrir nú Ferencvaros í Ungverjalandi þar sem hann hefur gert góða hluti.

Mynd: EPA

Roberto De Zerbi
Þessi fyrrum stjóri Brighton er atvinnulaus eftir að hann yfirgaf Marseille. Er væntanlega bara klár í Spurs ef hann fær starfið til frambúðar.

Mynd: EPA

Edin Terzic
Þessi fyrrum stjóri Dortmund hefur áður verið orðaður við Tottenham.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton7+1816
4Chelsea8+213
5Liverpool7+112
6Aston Villa8-311
7Brentford7+510
8Leeds7+310
9Everton8-110
10Ipswich Town8-410
11Hull City7+19
12Tottenham8-29
13Fulham8-28
14Newcastle7-48
15Man Utd707
16Crystal Palace7-87
17Bournemouth7-46
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland7-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.