Fotbolti.net
06.03.26 - 09:25
Elvar Geir Magnússon

Tottenham búið að gefast upp? - Sjáðu það helsta úr tapinu gegn Palace

Tottenham tapaði fyrir Crystal Palace.

Tottenham tapaði fyrir Crystal Palace.

Canon

Mynd: EPA

„Það var ekkert bit og engin reiði, stuðningsmenn fundu það. Það var eins og þeir væru búnir að gefast upp. Stuðningsmenn eru orðlausir, þeir trúa þessu ekki," segir Joe Cole, sparkspekingur TNT Sport.

Tottenham er stigi frá fallsæti en liðið tapaði 1-3 á heimavelli gegn Crystal Palace í gærkvöldi. Stór hluti áhorfenda var búinn að yfirgefa leikvanginn löngu fyrir leikslok.

Hér fyrir neðan má sjá það helsta úr leiknum
England: Tottenham í bullandi vandræðum
TENGT EFNI

England: Tottenham í bullandi vandræðum

Tottenham er án sigurs í ellefu síðustu deildarleikjum en aðeins 1935 hefur félagið gengið í gegnum lengra skrið án sigurs.

„Við þurfum að ræða málin á alvarlegan hátt. Við viljum alls ekki vera í þessari stöðu og þurfum að finna út hvernig við komumst út úr henni sem fyrst. Það hafa verið erfiðleikar en við erum ekki í stöðu fyrir afsakanir. Við þurfum að vinna vinnuna inni á vellinum," sagði Dominic Solanke, framherji Tottenham, eftir leikinn í gær.

Ofurtölva Opta telur 16,10% líkur á því að Tottenham falli og spili í Championship-deildinni á næsta tímabili.

„Tottenham er án vafa í fallbaráttu. Það sem svekkir stuðningsmenn mest eftir þennan leik er að þeir komust yfir og voru með tækifæri á að taka öll þrjú stigin. En Micky van de Ven fékk á sig þetta víti og rautt spjald og það breytti leiknum algjörlega," segir Glenn Murray, sérfræðingur BBC.

Tottenham búið að gefast upp? - Sjáðu það helsta úr tapinu gegn Palace
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton7+1816
4Chelsea8+213
5Liverpool7+112
6Aston Villa8-311
7Brentford7+510
8Leeds7+310
9Everton8-110
10Ipswich Town8-410
11Hull City7+19
12Tottenham8-29
13Fulham8-28
14Newcastle7-48
15Man Utd707
16Crystal Palace7-87
17Bournemouth7-46
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland7-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.