Fotbolti.net
06.04.20 - 10:15
Elvar Geir Magnússon

Barcelona og PSG vilja fá Willian

Willian.

Willian.

Canon

Mynd: Getty Images

Risafélögin Barcelona og PSG vilja fá Brasilíumanninn Willian en samningur hans við Chelsea rennur út í sumar.

Willian, sem er 31 árs, hefur verið á Stamford Bridge síðan 2013 en nú bendir allt til þess að hann færi sig um set.

PSG telur að fjölhæfni Willian myndi henta liðinu frábærlega.
Willian segir að Chelsea hafi boðið sér tveggja ára samning en hann sjálfur hafi beðið um þriggja ára samning. Viðræðum hafi þá verið hætt.

„Ég væri helst til í að vera áfram í ensku úrvalsdeildinni en ég útiloka ekkert. Sjáum hvað gerist í sumar," segir Willian.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.