þri 06. apríl 2021 07:00
Victor Pálsson
Edouard vill kveðja Celtic sem fyrst
Mynd: Getty Images
Odsonne Edouard, leikmaður Celtic, vill komast burt frá félaginu í sumar og mun ekki bíða eftir nýjum knattspyrnustjóra.

Football Insider greinir frá þessu en þessi 22 ára gamli leikmaður er á óskalista margra liða í Evrópu.

Celtic er að leita að nýjum stjóra þessa stundina og er goðsögnin Roy Keane oft nefnd til sögunnar.

Edouard hefur verið einn mikilvægasti leikmaður Celtic síðustu ár og hefur skorað yfir 15 mörk undanfarin þrjú tímabil.

Edouard kom til Celtic frá Paris Saint-Germain árið 2018 og hefur síðan þá skorað 53 mörk í 85 deildarleikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner