Fotbolti.net
24.09.26 - 14:02
Kári Snorrason

Viktor Bjarki: Þetta er ekki í lagi

Auglýsing
Fæddur árið 2008.

Fæddur árið 2008.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
„Þetta er náttúrulega ekki í lagi, það er september. Ég hélt að það væri enn þá smá sumar á Íslandi en það er greinilega ekki. Helvíti kalt, ég er ánægður að við erum inni í dag,“ sagði Viktor Bjarki Daðason í samtali við Fótbolta.net fyrir æfingu U21 árs landsliðsins í Egilshöll í hádeginu.

Liðið mætir Frakklandi klukkan 15:00 á Pepsi-vellinum í Laugardal á morgun. Sökum veðurs var æfingin færð inn í Egilshöll en upphaflega átti hún að vera í Laugardalnum.
Landsliðsæfingar í Miðgarði og Egilshöll vegna veðursins
TENGT EFNI

Landsliðsæfingar í Miðgarði og Egilshöll vegna veðursins

Bíður spenntur eftir fyrsta A-landsleiknum
Viktor hefur einu sinni verið valinn í A-landsliðið, þá gegn Japan í æfingaleik í byrjun sumars, en hann þurfti að draga sig úr hópnum vegna meiðsla.

Margir hafa kallað eftir að hann fái tækifærið með A-landsliðinu og var hann spurður hvort að hann væri vonsvikinn að fá ekki kallið fyrir komandi leiki í Þjóðadeildinni.

„Nei og já, auðvitað vill maður vera í A-landsliðinu eftir tímabil þar sem maður stóð sig vel. En maður er að koma til baka eftir erfið meiðsli. Ég er mjög glaður og mæti í þennan glugga með kassann úti, geri mitt besta. Þetta eru geggjaðir leikir og vonandi komumst við á EM,“ segir Viktor.

Þú bíður þá áfram spenntur eftir fyrsta A-landsleiknum?
„Já, það er markmiðið og búið að vera það mjög lengi. Ég bíð spenntur og það er hörð vinna sem kemur núna,“ segir Viktor að lokum.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Í stóru hlutverki hjá FCK.

Í stóru hlutverki hjá FCK.

Canon

Mynd: EPA

Bíður spenntur eftir fyrsta A-landsleiknum.

Bíður spenntur eftir fyrsta A-landsleiknum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.