Fotbolti.net
24.09.26 - 14:45
Snæbjört Pálsdóttir

Steini um umspilið fyrir HM: Meira réttlæti í þessu heldur en síðast

Þorsteinn Halldórsson telur breytt fyrirkomulag umspilsins um sæti á HM sanngjarnara en síðast.

Þorsteinn Halldórsson telur breytt fyrirkomulag umspilsins um sæti á HM sanngjarnara en síðast.

Canon

Mynd: EPA

Kvennalandslið

Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari Íslands, sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag þegar hann kynnti hópinn sem mætir Króatíu í tveimur leikjum í umspili um sæti á HM í Brasilíu.

Þorsteinn ræddi meðal annars verkefnið fram undan og telur breytt fyrirkomulag umspilsins sanngjarnara en þegar íslenska liðið féll úr leik gegn Portúgal í baráttunni um sæti á síðasta heimsmeistaramóti.

Ísland mætir Króatíu í tveggja leikja einvígi í október. Komist liðið áfram tekur við annað einvígi gegn Portúgal eða Norður-Írlandi þar sem HM-sæti verður undir.

Íslenska liðið hefur áður komist nálægt því að tryggja sér sæti á HM en Þorsteinn segir leikmenn og þjálfarateymi staðráðin í að stíga skrefið að þessu sinni.

„Við gerum okkur grein fyrir því að þetta eru alltaf krefjandi verkefni. Það er erfitt að komast í gegnum þetta en við trúum því alltaf og ætlum okkur að ná þessu skrefi,“ sagði Þorsteinn á blaðamannafundi í dag.

Hann segir fyrri vonbrigði hafa kennt liðinu mikið.

„Ég held að í þau skipti sem þetta hefur ekki gengið hingað til hafi maður alltaf lært af því.“

Þorsteinn er ánægður með að bæði einvígin verði leikin heima og að heiman. Fyrir síðasta heimsmeistaramót réðst það með hlutkesti hvort liðið fengi heimaleik í úrslitaumspilinu og Ísland þurfti að mæta Portúgal ytra.

„Mér finnst umspilið núna sanngjarnara en síðast. Þá gastu dregist á útivöll gegn andstæðingi af ákveðnu kaliberi. Nú færðu tækifæri í tveimur leikjum og það er meira réttlæti í því.“

Fyrri leikur Íslands og Króatíu fer fram ytra 9. október en liðin mætast svo á Laugardalsvelli 13. október.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.