Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 06. maí 2021 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Páll Veigar framlengir við Þór - Lánaður til Magna (Staðfest)
Mynd: Þór
Páll Veigar Ingvason er búinn að framlengja samning sinn við uppeldisfélagið Þór út tímabilið 2023 og mun hann leika að láni hjá Magna í sumar.

Páll er efnilegur miðjumaður á tvítugsaldri. Hann var fyrirliði 2. flokks Þórs í fyrra og á sex keppnisleiki að baki með meistaraflokki, þar af fjóra í næstefstu deild.

Páll Veigar kom inn af bekknum í 3-0 sigri Þórs gegn Magna í Mjólkurbikarnum síðasta föstudag. Hann spilaði síðustu 20 mínúturnar.

Magni féll úr Lengjudeildinni í fyrra og mun því leika í 2. deildinni í ár.

„Samningur Páls Veigars er til tveggja ára og óskum við Páli til hamingju með nýja samninginn," segir á vefsíðu Þórs.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner