06.06.16 - 20:56
Ívan Guðjón Baldursson
Evra framlengir við Juventus (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Patrice Evra er búinn að skrifa undir árs framlengingu við Ítalíumeistara Juventus og er því samningsbundinn félaginu þar til næsta sumar.
Evra er 35 ára gamall vinstri bakvörður og hefur náð frábærum árangri á sínum tveimur árum hjá Juve.
Evra er 35 ára gamall vinstri bakvörður og hefur náð frábærum árangri á sínum tveimur árum hjá Juve.
Evra verður með franska landsliðinu á EM enda var hann mikið viðriðinn byrjunarlið Juve á tímabilinu og spilaði 35 leiki í öllum keppnum, þrátt fyrir harða samkeppni frá brasilíska bakverðinum Alex Sandro.
Evra lék fyrir Manchester United í átta ár áður en hann fór til Juve og á hann 73 landsleiki að baki fyrir Frakka.
Evra lék fyrir Manchester United í átta ár áður en hann fór til Juve og á hann 73 landsleiki að baki fyrir Frakka.
