Lögregluvarðstjórinn Pétur Guðmundsson verður með flautuna annað kvöld þegar árlegur leikur Íslands- og bikarmeistara síðasta árs fer fram; Meistarakeppni KSÍ.
KR tekur þá á móti Víkingum á Meistaravöllum í Vesturbænum. Leikurinn verður 19:15.
Pétur dæmdi einmitt úrslitaleik Mjólkurbikarsins í fyrra þegar Víkingur vann FH.
KR tekur þá á móti Víkingum á Meistaravöllum í Vesturbænum. Leikurinn verður 19:15.
Pétur dæmdi einmitt úrslitaleik Mjólkurbikarsins í fyrra þegar Víkingur vann FH.
Meistarakeppni kvenna fer fram í dag en þar mætast Valur og Selfoss á Origo vellinum klukkan 16. Einar Ingi Jóhannsson dæmir þann leik.
Meistarakeppni kvenna
Í dag klukkan 16: Valur - Selfoss
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson. Aðstoðardómarar: Þórður Arnar Árnason og Eysteinn Hrafnkelsson. Varadómari: Arnar Ingi Ingvarsson.
Meistarakeppni karla
Á morgun klukkan 19:15: KR - Víkingur
Dómari: Pétur Guðmundsson. Aðstoðardómarar: Birkir Sigurðarson og Andri Vigfússon. Varadómari: Egill Arnar Sigurþórsson.
Athugasemdir