Fotbolti.net
06.07.20 - 09:30
Magnús Már Einarsson

Liverpool vill fá Thiago Alcantara

Thiago Alcantara.

Thiago Alcantara.

Canon

Mynd: Getty Images

Powerade
Ensku slúðurblöðin eru mætt með allt helsta slúðrið. BBC tók saman.


Manchester City gæti fengið Lionel Messi (33) þegar samningur hans hjá Barcelona rennur út næsta sumar, ef að Pep Guardiola fer frá City. (Talksport)

Chelsea ætlar að selja sex leikmenn til að fjármagna kaup á Kai Havertz (21) en hann er verðmetinn á 90 milljónir punda. (Express)

Arsenal og Napoli hafa bæði áhuga á Allan Saint-Maximin (23) kantmanni Newcastle. (Le 10 Sport)

Arsenal ætlar að ræða við Alexandre Lacazette (29) um nýjan samning. (Mirror)

PSG er að skoða Hector Bellerin (25) hægri bakvörð Arsenal en Juventus og Bayern Munchen hafa einnig áhuga. (Express)

Thiago Alcantara (29), miðjumaður Bayern Munchen, vill ólmur fara í ensku úrvalsdeildina en Liverpool vill kaupa hann á 32 milljónir punda. (Mail)

Hansi Flick, þjálfari Bayern, segist ætla að reyna að gera sitt besta til að sannfæra Alcantara um að vera áfram hjá Bayern. (Sun)

Danny Rose (30) óttast að ferill sinn hjá Tottenham sé á enda en hann er í dag á láni hjá Newcastle. (Mirror)

Sevilla og Atletico Madrid eru að skoða króatíska miðjumanninn Ivan Rakitic (32) en hann er á förum frá Barcelona í sumar. (Marca)

Juan Mata (32) miðjumaður Manchester United vill fara til Fenerbahce í Tyrklandi í sumar. (Sport Bible)

Carlo Ancelotti, stjóri Everton, segist ekki ætla að selja stjörnu leikmenn sína en Lucas Digne (26), Richarlison (23) og Mason Holgate (23) hafa allir verið orðaðir við önnur félög. (Talksport)

Paul Scholes, fyrrum miðjumaður Manchester United, segir að félagið hafi gert mistök með því að kaupa ekki norska framherjann Erling Braut Haaland (19). (Mail)

Mario Mandzukic (34) er án félags eftir að hafa rift samningi hjá Al-Duhail í Katar. (Goal)
Hector Bellerin er orðaður við PSG.

Hector Bellerin er orðaður við PSG.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.