Dannmörk mætir Englandi í undanúrslitaleik EM á morgun, Kasper Schmeichel markvörður danska landsliðsins og Leicester á Englandi sat fyrir svörum á blaðamannafundi í kvöld.
Enskur blaðamaður spurði Schmeichel hvað það myndi þýða fyrir danska landsliðið að stoppa 'fótboltann að koma heim' eins og englendingar orða það þegar þeir vinna stórmót.
„Þú þekkir frasann 'hann er að koma heim', hvað myndi það þýða fyrir ykkur að koma í veg fyrir að hann komi heim?" spurði blaðamaðurinn.
Schmeichel svaraði hissa á svipinn: „Hefur hann einhverntíman komið heim? Ég veit það ekki, hafið þið unnið EM?"
En þá átti hann við evrópubikarinn en England hefur aðeins unnið stórmót einu sinni en það var HM 1966.
Kasper Schmeichel was asked what it would mean to stop football from 'coming home' ... 😅 pic.twitter.com/0AAwNr8J0L
— ESPN FC (@ESPNFC) July 6, 2021
Athugasemdir