Fotbolti.net
06.07.21 - 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hinn 21 árs gamli Helgi ekki lengur þjálfari Einherja (Staðfest)

Helgi Snær Agnarsson.

Helgi Snær Agnarsson.

Canon

Mynd: Einherji

Einherji á Vopnafirði er að skipta um þjálfara. Í dag var tilkynnt um starfslok Helga Snæs Agnarssonar hjá félaginu.
„Ungmennafélagið Einherji og Helgi Snær Agnarsson hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að Helgi láti af störfum sem þjálfari meistaraflokks karla hjá félaginu," segir í tilkynningu Einherja.

Helgi Snær var fyrir tímabilið ráðinn spilandi þjálfari Einherja. Hann er aðeins 21 árs gamall.

„Ég vil þakka fyrir minn tíma á Vopnafirði. Allir sem eru í kringum þetta vonandi vita að ég lagði mig allan fram í verkefnið. Ég dýfði mér ofan í djúpu laugina og er stoltur af sjálfum mér. Ég skilaði öllu af mér sem ég átti fram að færa og óska Einherja velgengni í sumar," segir Helgi.

Einherji þakkar Helga fyrir gott og heiðarlegt starf. Einherji er þessa stundina í 11. sæti 3. deildar.

Ástríðumenn velta því fyrir sér á Twitter hvort Ingvi Ingólfsson sé að taka við liðinu en hann fékk nýverið félagaskipti yfir í Einherja. Ingvi stýrði Sindra á síðustu leiktíð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.