Fotbolti.net
06.07.21 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Podolski heim til Gornik Z (Staðfest)

Podolski heim til Gornik Z (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Lukas Podolski er kominn heim. Þessi 36 ára gamli framherji skrifaði undir eins árs samning við Gornik Zabrze í heimalandinu sínu, Póllandi.
Podolski á langan feril að baki í Tyrklandi, Japan, Ítalíu, Þýskalandi og Englandi. Flestir þekkja hann sennilega frá tímanum sínum hjá Arsenal frá árunum 2012-2015.

Hann var með þýska landsliðinu sem vann HM árið 2014 og var valinn besti ungi leikmaðurinn á HM 2006.

Blikinn Adam Örn Arnarson lék með Gornik Zabrze tímabilið 2019/20 en hann er á mála hjá Tromsö í dag.

Mörg lið voru á eftir honum en hann fékk tilboð meðal annars frá Qatar og Tyrklandi þar sem hann lék nú síðast með Antalyaspor í eitt tímabil.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.