Fotbolti.net
06.07.26 - 08:26
Elvar Geir Magnússon

Bellingham fær fullt hús - Besti sigur Englands síðan 1966?

Jude Bellingham og Elliot Anderson

Jude Bellingham og Elliot Anderson

Canon

Mynd: EPA

England hefur tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum HM eftir rosalegan 3-2 sigur gegn Mexíkó í nótt. Jude Bellingham skoraði tvö mörk fyrir England og Harry Kane skoraði úr vítaspyrnu.

Enskir fjölmiðlar tala um hetjulega frammistöðu síns liðs, sem þurfti að leika manni færri nánast allan seinni hálfleikinn eftir að Jarell Quansah fékk rautt spjald.

Í lok leiksins voru Englendingar nær bugaðir af þreytu eftir að hafa lagt allt í leikinn við erfiðar aðstæður.
Sjáðu HM mörkin: Allt það helsta úr sigri Englands í nótt
TENGT EFNI

Sjáðu HM mörkin: Allt það helsta úr sigri Englands í nótt

„Á þessu eftirminnilega kvöldi, sem einkenndist af mikilli spennu, tilfinningum og listrænu sjónarspili á einum magnaðasta leikvangi íþróttaheimsins, vann enska liðið einn af sínum stærstu sigrum á heimsmeistaramóti," segir Phil McNulty, helsti fótboltablaðamaður BBC.

„Reyndar má segja að þetta sé einn af stærstu sigrum Englands yfir höfuð – og ef til vill sá besti síðan liðið vann heimsmeistaratitilinn á Wembley árið 1966."

Jude Bellingham fær fullt hús, 10/10, frá Mirror, en hér að neðan má sá hvernig einkunnagjöf blaðsins var:

Jordan Pickford 9
Jarell Quansah 5
Ezri Konsa 7
Marc Guehi 8
Nico O’Reilly 7
Declan Rice 8
Elliot Anderson 8
Bukayo Saka 7
Jude Bellingham 10
Anthony Gordon 9
Harry Kane 9
(John Stones 8)
Bellingham fær fullt hús - Besti sigur Englands síðan 1966?
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.