Fotbolti.net
06.07.26 - 08:49
Elvar Geir Magnússon

Trump hrifinn af Kane

Trump henti í færslu.

Trump henti í færslu.

Canon

Mynd: EPA

Donald Trump forseti Bandaríkjanna er heldur betur farinn að láta til sín taka á HM. Fjallað var um það í gær að hann hafi verið með puttana í málum þegar leikbann Folarin Balogun. sóknarmanns Bandaríkjanna, var fellt niður.

Eftir sigur Englands á Mexíkó á HM í nótt fór Trump á lyklaborðið og hrósaði fyrirliða Englands, Harry Kane.

„Harry Kane hjá Englandi er FRÁBÆR leikmaður!!!" skrifaði Trump en Kane skoraði eitt af mörkum Englands í 3-2 sigri úr vítaspyrnu.

Trump er svo sannarlega ekki sá eini sem hrósar Kane enda hefur þessi magnaði sóknarmaður skorað 73 mörk á tímabilinu.
Trump lét afturkalla leikbannið
TENGT EFNI

Trump lét afturkalla leikbannið

Trump hrifinn af Kane
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.