Fotbolti.net
06.07.26 - 08:41
Ívan Guðjón Baldursson

Casemiro: Við brugðumst þjóðinni

Casemiro: Við brugðumst þjóðinni
Canon

Mynd: EPA

Brasilíski miðjumaðurinn Casemiro var í tárum eftir tap Brasilíu gegn Noregi í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í gærkvöldi.
Algjört stórslys Brasilíu - „Neymar getur ekki hreyft sig“
TENGT EFNI

Algjört stórslys Brasilíu - „Neymar getur ekki hreyft sig“

Casemiro svaraði spurningum eftir leikslok og réði ekki við tárin. Hann grét og var myrkur í máli.

„Þetta er mjög erfitt. Á þessari stundu vil ég bara vera með fjölskyldunni. Við gerðum okkar besta en við misstum af draumnum. Við ollum brasilísku þjóðinni vonbrigðum," sagði Casemiro.

„Við munum alltaf vera kynslóðin sem vann ekki HM."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.