Tuchel eftir hetjulega frammistöðu: Eins og að vinna úrslitaleik

Anthony Gordon í fagnaðarlátum eftir leik.

Mynd: EPA

Thomas Tuchel.

„Hetjuleg frammistaða og hetjuleg úrslit. Ég er svo ánægður með leikmenn og einnig með sjálfan mig, að hafa lifað þessa reynslu síðustu tvo daga. Þetta er svo sérstök stund. Að hafa yfirstigið alla þessa erfiðleika gerir þetta sérstakt fyrir okkur," sagði Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, eftir 3-2 sigurinn gegn Mexíkó í nótt.
„Ef eitthvað lið er með hjarta og trú þá er það þetta lið. Þeir fóru áfram á hugarfarinu. Við yfirstigum svo margar hindranir."

TENGT EFNI
Bellingham fær fullt hús - Besti sigur Englands síðan 1966?
England mun mæta Noregi í 8-liða úrslitum HM eftir þennan rosalega sigur gegn Mexíkó í nótt. Jude Bellingham skoraði tvö mörk fyrir England og Harry Kane skoraði úr vítaspyrnu.
Enskir fjölmiðlar tala um hetjulega frammistöðu síns liðs, sem þurfti að leika manni færri nánast allan seinni hálfleikinn eftir að Jarell Quansah fékk rautt spjald. Í lok leiksins voru Englendingar nær bugaðir af þreytu eftir að hafa lagt allt í leikinn við erfiðar aðstæður.
„Í aðdragandum leið mér aldrei eins og þetta væri leikur í 16-liða úrslitum. Sú tilfinning er heldur ekki núna. Tilfinningin er eins og þetta hafi verið úrslitaleikur eða eitthvað álíka. Við kláruðum þetta með hugarfari og hjarta og leikmenn eru að sjálfsögðu uppgefnir, sem er fallegt að sjá."
Fyrir leikinn var talað mikið um erfiðar aðstæður á Azteca vellinum sem er hátt yfir sjávarmáli. Ekki hjálpaði það til að England lék manni færri svona stóran hluta leiksins.
„16-liða úrslitin snúast um það að finna leiðir til að vinna. Við gerðum það með hugarfari og hjarta," sagði Tuchel í sigurvímu.