Fotbolti.net
06.07.26 - 08:22
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Sádi-arabísk félög banka hjá Rafa Leao

Sádi-arabísk félög banka hjá Rafa Leao
Canon

Mynd: EPA

Portúgalski kantmaðurinn Rafael Leao virðist vera á förum frá AC Milan í sumar en hann skoðar framtíðina sína betur eftir að Portúgal lýkur keppni á heimsmeistaramótinu.
Leao hefur komið inn af bekknum í öllum fjórum HM leikjum Portúgal í sumar og er með eitt mark og eina stoðsendingu.

Hann er 27 ára gamall og með tvö ár eftir af samningi hjá Milan. Í gegnum tíðina hefur hann verið orðaður við ýmis stórveldi víðsvegar um Evrópu en eins og staðan er í dag gæti hann verið á leið til Sádi-Arabíu.

Evrópsk félög hafa ekki sýnt honum mikinn áhuga á upphafi sumars en sádi-arabísku félögin vilja ólm krækja í kantmanninn.
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.