06.08.15 - 13:33
Elvar Geir Magnússon
Angel Di Maria til PSG (Staðfest)

Angel Di Maria.

Mynd: Getty Images

Angel Di Maria.

Mynd: Getty Images
Angel Di Maria er formlega orðinn leikmaður Paris St-Germain í Frakklandi. Franska félagið keypti Di Maria á 44,3 milljónir punda frá Manchester United.
Þessi 27 ára landsliðsmaður Argentínu var aðeins eitt ár í herbúðum United sem keypti hann á 59,7 milljónir punda en það er breskt met.

Di Maria gekkst undir læknisskoðun í Katar áður en hann skrifaði undir.
„Ég er mjög stoltur og get ekki beðið eftir því að klæðast búningi PSG,\" segir Di Maria.
Eftir lofandi byrjun á síðasta tímabili fjaraði fljótt undan frammistöðu Di Maria.
Louis van Gaal, stjóri United, hefur þegar styrkt miðsvæðið með kaupum á Memphis Depay, Bastian Schweinsteiger og Morgan Schneiderlin en United á leik gegn Tottenham í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á laugardag.