Fotbolti.net
06.08.15 - 18:42
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Mohamed Salah til Roma (Staðfest)

Fiorentina kærir

Mohamed Salah gerði 6 mörk í 16 deildarleikjum á láni hjá Fiorentina síðari hluta síðasta tímabils.

Mohamed Salah gerði 6 mörk í 16 deildarleikjum á láni hjá Fiorentina síðari hluta síðasta tímabils.

Canon

Mynd: Getty Images

Mohamed Salah, kantmaður Chelsea, er kominn til AS Roma á lánssamning út tímabilið.

Roma borgar 5 milljónir evra fyrir lánið og mun að öllum líkindum kaupa leikmanninn fyrir 15 milljónir á einhverju stigi tímabilsins.
„Ég tel Roma vera meðal stærstu klúbba heims og er ánægður að vera partur af liðsheildinni hér,\" sagði Salah við Roma TV.

„Ég bjóst ekki við að hundruðuðir stuðningsmanna myndu taka á móti mér á flugvellinum, það kom mér skemmtilega á óvart.

„Hér ætlum við að gefa okkur alla í að vinna deildina og ég vonast til að vera partur af þessu félagi í langan tíma.\"


Salah var lánaður til Fiorentina á síðasta tímabilið. Í lánssamning Salah var ákvæði sem Fiorentina vildi virkja, til að gera félaginu kleift að halda leikmanninum hjá sér á samskonar lánssamning í annað ár.

Salah vildi ekki vera áfram hjá Fiorentina og er nú búinn að skrifa undir hjá Roma, sem fór ekki vel í stjórnarmenn Flórensarliðsins sem eru búnir að kæra málið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.