Önnur umferðin í Championship deildinni hélt áfram í dag en nú voru að klárast alls átta leikir.
Sunderland, sem er nýliði í deildinni, vann öflugan útisigur á Bristol City. Liðið lenti 2-1 undir í síðari hálfleiknum en náði að snúa dæminu við.
Sunderland er með fjögur stig eftir tvo leiki og því byrjunin fín hjá liðinu.
Blackburn er með fullt hús eftir tvo fyrstu leikina en liðið valtaði yfir Swansea á útivelli.
Vincent Kompany og lærisveinar hans í Burnley gerðu 1-1 jafntefli á heimavelli gegn Luton. Jóhann Berg Guðmundsson var ekki í leikmannahópi Burnley í dag.
Stoke, QPR og Reading unnu sína leiki svo eitthvað sé nefnt en öll úrslit og markaskorara má sjá hér fyrir neðan.
Bristol City 2 - 3 Sunderland
0-1 Ellis Reco Simms ('4 )
1-1 Andreas Weimann ('10 )
2-1 Chris Martin ('51 )
2-2 Ellis Reco Simms ('53 )
2-3 Ross Stewart ('72 )
Burnley 1 - 1 Luton
0-1 Dan Potts ('5 )
1-1 Josh Brownhill ('50 )
Preston NE 0 - 0 Hull City
QPR 3 - 2 Middlesbrough
1-0 Chris Willock ('13 )
2-0 Robert Dickie ('27 )
3-0 Lyndon Dykes ('38 )
3-1 Matt Crooks ('41 )
3-2 Marcus Forss ('56 )
Rautt spjald: Darragh Lenihan, Middlesbrough ('90)
Reading 2 - 1 Cardiff City
0-1 Callum O'Dowda ('4 )
1-1 Shane Long ('27 , víti)
2-1 Tom Ince ('63 )
Sheffield Utd 2 - 0 Millwall
1-0 Iliman Ndiaye ('7 )
2-0 Sander Berge ('22 )
Stoke City 2 - 0 Blackpool
1-0 Harrison Thomas Clarke ('33 )
2-0 Jacob Brown ('74 )
Swansea 0 - 3 Blackburn
0-1 Sammie Szmodics ('39 )
0-2 Ben Brereton ('57 )
0-3 Lewis Travis ('84 )