Fotbolti.net
06.08.26 - 22:24
Snæbjört Pálsdóttir

Katie Cousins: „Þetta er orðið eins og annað heimili“

Auglýsing
Katie Cousins var virkilega öflug þegar Þróttur náði í stig gegn Stjörnunni á Samsungvellinum.

Katie Cousins var virkilega öflug þegar Þróttur náði í stig gegn Stjörnunni á Samsungvellinum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

Stjarnan og Þróttur gerðu 1-1 jafntefli á Samsungvellinum í kvöld í 15. umferð Bestu deildarinnar. Þróttur byrjaði leikinn af miklum krafti en þurfti að koma til baka í síðari hálfleik eftir að Stjarnan komst yfir. 

Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 1 Þróttur R.

Katie Cousins var yfirburðarleikmaður á vellinum í kvöld en hún var engu að síður svekkt með niðurstöðuna.

„Satt að segja finnst mér jafntefli vera eins og töp, þannig að ég er svekkt.“

Þróttur byrjaði leikinn vel og var sterkari aðilinn framan af, en Stjarnan kom grimmari út í síðari hálfleikinn og komst yfir. Katie segir að Þróttur þurfi að nýta betur þá kafla þar sem liðið er ofan á.

„Leikir breytast og mómentum færist til, þannig er fótboltinn. Við þurfum bara að gera betur í að skora mörk fyrr í leikjunum.“

Þrátt fyrir að Þróttur hafi ekki náð í sigur sér Katie merki um framfarir í liðinu.

„Já, mér finnst við vera farnar að tengja betur saman. Við erum að leggja hart að okkur, það er engin spurning um það, þannig að við höldum bara áfram.“

Katie er komin aftur til Þróttar í fjórða sinn og er samningsbundin félaginu út tímabilið 2027. Hún segir Ísland vera orðið eins og annað heimili.

„Þetta er eiginlega orðið eins og annað heimili á þessum tímapunkti.“

„Félagið hefur reynst mér mjög vel og ég elska að vera hérna, þannig að ég er ánægð að vera komin aftur.“

Þróttur hefur átt erfitt uppdráttar í deildinni en Katie segir liðið ekki mega dvelja of mikið við það sem liðið hefur ekki náð að gera hingað til.

„Við tökum bara einn leik í einu. Það sem er liðið er liðið.“

Markmiðið er einfalt fyrir framhaldið.

„Við förum bara inn í hvern leik og reynum að vinna hann. Það er í rauninni allt og sumt.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.