Fotbolti.net
06.09.15 - 20:33
Alexander Freyr Tamimi
- Laugardalsvöllur

Ísland komið á EM (Staðfest)

Markalaust jafntefli gegn Kasakstan dugði til að koma Íslandi á EM 2016. Hér fagna strákarnir okkar sigrinum.

Markalaust jafntefli gegn Kasakstan dugði til að koma Íslandi á EM 2016. Hér fagna strákarnir okkar sigrinum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Ísland 0 - 0 Kasakstan
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu tryggði sér í kvöld sæti á stórmóti í fyrsta skiptið í sögunni. Ísland gerði markalaust jafntefli gegn Kasakstan á Laugardalsvelli og dugði stigið til að tryggja þátttöku Íslands á sínu fyrsta Evrópumóti, sem fer fram í Frakklandi næsta sumar.

Gestirnir frá Kasakstan mættu grimmir til leiks og fékk Tanat Nuserbayev líklega besta færi fyrri hálfleiks eftir fína sókn, en skot hans var slakt og Hannes Þór Halldórsson lenti ekki í vandræðum.

Þegar hálftími var liðinn af leiknum tók íslenska liðið algerlega völdin og var ansi nálægt því að skora fyrir leikhlé. Gylfi Þór Sigurðsson fékk fínt færi eftir flotta sókn en Stas Pokatilov í marki gestanna varði vel. Fjölmörg hálffæri sköpuðust eftir föst leikatriði en staðan var 0-0 í hálfleik.

Ísland var nánast alfarið með boltann í seinni hálfleiknum. Gestirnir lágu til baka og virtust vera sáttir með stigið. Strákunum okkar gekk illa að brjóta þá á bak aftur og fá færi en voru nokkrum sinnum óheppnir. Til að mynda átti Jón Daði Böðvarsson skalla rétt framhjá.

Fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt þegar ein mínúta var eftir af venjulegum leiktíma, fyrir ansi litlar sakir. Hann verður því í banni gegn Lettlandi í seinni leiknum. Furðulegur dómur, en tveir til þrír leikmenn gestanna voru í raun heppnir að hanga inni á vellinum.

Mörkin létu hins vegar ekki sjá sig í kvöld og 0-0 jafntefli niðurstaðan. Það er hins vegar nóg og Íslendingar geta í kvöld fagnað sögulegum árangri landsliðsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.