Jón Dagur um A-landsliðið: Auðvitað væri gaman að fá kallið
Auglýsing

Jón Dagur í leik gegn Belgum með A-landsliðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Dagur Þorsteinsson, fyrirliði U21-landsliðsins, skoraði glæsilegt mark í sigrinum gegn Lúxemborg í kvöld. Þetta var fyrsti leikur U21 í nýrri undankeppni EM.
Staðan var markalaus í hálfleik.
Staðan var markalaus í hálfleik.
„Við vissum að við myndum fá færi. Við enduðum fyrri hálfleikinn á of lágu tempói," sagði Jón Dagur þegar hann var spurður út í hvað var rætt um í hálfleik.
Erik Hamren landsliðsþjálfari Íslands sagði á fréttamannafundi í dag að mögulega yrði leikmaður úr U21-landsliðinu kallaður inn í A-landsliðið fyrir ferðalag til Albaníu.
Jón Dagur hefur spilað þrjá A-landsleiki og var spurður út í hvort hann vonaðist eftir að vera kallaður upp í aðalliðið.
„Auðvitað væri það gaman en ég er hér og er einbeittur á þetta verkefni. Ef það gerist þá gerist það. Ef ekki þá er ég bara í leiknum á mánudaginn."
Sjáðu viðtalið í heild í sjónvarpinu hér að ofan.