Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 06. september 2019 20:24
Ívan Guðjón Baldursson
Lommel enn án sigurs - Auðvelt fyrir PSV kvenna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lærisveinar Stefáns Gíslasonar hjá Lommel fengu topplið St. Gilloise í heimsókn í belgsíku B-deildinni í kvöld.

Lommel komst tvívegis yfir í leiknum en Federico Vega jafnaði í bæði skiptin fyrir gestina.

Lommel er komið með þrjú stig eftir fimm umferðir og á liðið enn eftir að vinna deildarleik á tímabilinu.

Lommel SK 2 - 2 St. Gilloise
1-0 A. Naudts ('22)
1-1 Federico Vega ('40)
2-1 B. Santermans ('57)
2-2 Federico Vega ('69)

Í hollensku kvennadeildinni vann PSV auðveldan sigur á PEC Zwolle.

Anna Björk Kristjánsdóttir er á mála hjá PSV sem er með sex stig og markatöluna 8-1 eftir tvær fyrstu umferðirnar.

PSV 4 - 0 PEC Zwolle
1-0 J. Smits ('69)
2-0 K. Snoeijs ('73)
3-0 K. Snoeijs ('80)
4-0 A. Nouwen ('88)
Athugasemdir
banner