Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 06. september 2019 16:30
Magnús Már Einarsson
Owen: Liverpool vildi losna fyrr við Gerrard
Steven Gerrard og Michael Owen
Steven Gerrard og Michael Owen
Mynd: Getty Images
Michael Owen, fyrrum framherji Liverpool, hefur gefið út ævisögu sína en þar segir hann meðal annars frá því að félagið hafi viljað losna við Steven Gerrard tveimur árum áður en hann fór frá félaginu.

Gerrard lék með Liverpool allt til ársins 2015 þegar hann fór til Los Angeles Galaxy í Bandaríkjunum.

„Í tilfelli Seven þá efast ég stórlega um að hann hafi virkilega viljað fara til Bandaríkjanna árið 2015. Ég hef heyrt að félagið hafi viljað hann í burtu tveimur árum áður en hann fór," sagði Owen.

„Ég er viss um að hann hefði frekar viljað klára ferilinn hjá Liverpool með því að spila færri leiki á tímabili og fara síðan í þjálfarateymið."
Athugasemdir
banner
banner