Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 06. september 2020 14:28
Victor Pálsson
Svíþjóð: Bjarni Mark lék í jafntefli Brage
Mynd: KSÍ
Umea 1 - 1 Brage
1-0 Beneyam Demte('54)
1-1 Andre Kamp('54)

Bjarni Mark Antonsson var í byrjunarliði IK Brage í dag sem spilaði við Umea í næst efstu deild í Svíþjóð.

Bjarni spilaði á miðju Brage í leiknum en honum var skipt af velli þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.

Leiknum lauk með 1-1 jafntefli en Brage tókst að jafna metin á 80. mínútu eftir að hafa lent undir snemma í seinni hálfleik.

Um var að ræða leik í 16. umferð deildarinnar og situr Brage í sjöunda sæti deildarinnar eftir erfitt gengi í síðustu leikjum.

Brage hefur aðeins unnið einn af síðustu fimm leikjum sínum og er sjö stigum frá Jonkopings sem situr í þriðja sætinu sem er umspilssæti.

Athugasemdir
banner
banner
banner