06.09.26 - 18:59
Sigurjón Árni Torfason
Lárus: Ég ætla ekki að segja það
Auglýsing

Lárus var eðlilega vel sáttur eftir leik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA tók á móti KR í lokaumferð Bestu deildar karla fyrir skiptingu á Elkem-vellinum á Akranesi. Leiknum lauk með sannfærandi 3-1 sigri Skagamanna í góðri stemningu og fínu veðri á Akranesi.
Fótbolti.net var að sjálfsögðu mætt á völlinn og spjallaði við Lárus eftir leik.

Lestu um leikinn: ÍA 3 - 1 KR
„Bara frábært. Leikmennirnir voru gríðarlega öflugir í dag, voru kraftmiklir og mikill kraftur í mönnum, mikil vinnsla og héldu boltanum þess á milli og voru bara mjög góðir í dag."
Skagamenn spiluðu virkilega góðan leik í dag, og sennilega sá besti í sumar.
„Já, gæti verið það sko. Ég gæti trúað að þetta væri einn af bestu leikjunum okkar í sumar og það er bara þannig að þegar þú mætir KR þá þarftu að vera "on it". Þeir eru með gríðarlega öflugt lið, það er mikill kraftur í þeim, mikil orka í þeim og með góða fótboltamenn. Þannig að ef þú ert ekki "on it" þá verður þér refsað. Við spiluðum við þá á Meistaravöllum, held það hafi verið í maí eða júní þar sem þeir léku sér, endaði 5-3. Þar vorum við sofandi oft á tíðum og þá refsuðu þeir grimmt. Þannig að ef þú ætlar að ná í eitthvað, sem við þurftum í dag, þá þarftu að vera klár í slaginn á móti KR-ingum og við vorum það í dag."
ÍA tryggðu sér í dag að vera í efra umspilinu núna þegar deildin skiptist í tvennt. Hver eru markmið ÍA í síðustu leikjunum?
„Jú, hellingur að keppa, við viljum taka þessi skref fram og við viljum færa félagið meðal bestu félaga landsins og nú erum við að fara að spila við fimm bestu félög landsins, þannig að það eru bara mjög spennandi tímar framundan og hérna, við höfum verið í neðri hlutanum og vitum hvað það er leiðinlegt að vera að berjast þar, þannig að við ætlum heldur betur að láta til okkar taka í efri hlutanum og reyna að ná í einhver stig."
Eitthvað sæti sem er markmið?
„Það er það, ég ætla ekki að segja það"