06.09.26 - 19:18
Ívan Guðjón Baldursson
Arteta: Persónuleg vandamál Ödegaard liðin tíð

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Mikel Arteta var gríðarlega ánægður með viðbrögð sinna manna eftir að hafa lent undir snemma leiks á heimavelli gegn Chelsea í dag.

TENGT EFNI
England: Meistararnir alltof stór biti fyrir Chelsea
Englandsmeistarar Arsenal blésu til sóknar og stóðu að lokum uppi sem sigurvegarar eftir að hafa verið sterkari aðilinn nánast allan leikinn. Lokatölur 2-1. Arsenal er með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir og eru meistararnir aðeins búnir að fá eitt mark á sig.
„Þetta var ekki rétta byrjunin en við brugðumst frábærlega við. Mér leist mjög vel á hvernig strákarnir börðust og tóku áhættur gegn sterkum andstæðingum sem eru með mjög góðan þjálfara. Þetta var frábær leikur og við vörðumst mjög vel gegn gæðamiklu liði. Þetta var ótrúleg frammistaða hjá okkur," sagði Arteta
Fyrirliðinn Martin Ödegaard átti frábæran leik og skoraði sigurmarkið snemma í síðari hálfleik. Hann er kominn með þrjú mörk í fjórum leikjum á upphafi tímabils.
„Vandamálin í persónulegu lífi hans eru að baki og hann er aftur byrjaður að njóta þess að spila fótbolta. Hann er í góðu standi og getur reynst okkur mjög mikilvægur á tímabilinu. Hann var framúrskarandi í dag."
Arteta hrósaði meðal annars nýja kantmanninum Christos Tzolis sem lék allan leikinn á vinstri kanti og David Raya fyrir að vera öryggið uppmálað á milli stanganna, auk Bukayo Saka og Kai Havertz sem áttu frábæran leik eftir að hafa misst af stórum hluta síðustu leiktíðar vegna meiðsla.

Einkunnir Arsenal og Chelsea: Ödegaard og Saka bestir

Mynd: EPA

Mynd: EPA