Fotbolti.net
06.09.26 - 19:45
Ívan Guðjón Baldursson

Alonso: Vonsviknir að ná ekki í stig

Alonso: Vonsviknir að ná ekki í stig
Canon

Mynd: EPA

Xabi Alonso þjálfari Chelsea svaraði spurningum eftir tap gegn Englandsmeisturum Arsenal í þriðju umferð enska úrvalsdeildartímabilsins.
England: Meistararnir alltof stór biti fyrir Chelsea
TENGT EFNI

England: Meistararnir alltof stór biti fyrir Chelsea

Chelsea náði forystunni snemma leiks en réði svo ekki við meistarana sem reyndust alltof gæðamiklir og snéru stöðunni sér í vil. Lokatölur 2-1 fyrir Arsenal, sem er með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir og aðeins búið að fá eitt mark á sig.

Chelsea situr eftir með sex stig eftir að hafa unnið afar fjöruga leiki gegn Fulham og Brighton í fyrstu tveimur umferðunum.

„Fyrsta tapið er mjög sárt en þetta var frábær leikur á milli tveggja liða sem lögðu allt í sölurnar. Við gerðum okkar besta en töpuðum að lokum gegn stórkostlegum andstæðingum. Leikurinn var nokkuð jafn eftir jöfnunarmarkið, við fengum nokkur færi en tókst ekki að skora og erum vonsviknir að fara héðan án þess að krækja í stig," sagði Alonso.

„Það er mjög erfitt að skapa færi gegn þessu liði en við sköpuðum þrjú eða fjögur marktækifæri auk þess að skora. Við þurfum að bæta varnarleikinn, við viljum byrja að halda hreinu. Það kemur með tímanum, þetta er ákveðið ferli. Leikmennirnir eru að læra á nýjan leikstíl og þetta mun allt koma að lokum, ég er bara nýbyrjaður að vinna með þeim.

„Ég er mjög ánægður með hugarfarið í hópnum, strákarnir berjast allan tímann og gefast aldrei upp. Það er mjög mikilvægt merki."


Alonso var meðal annars spurður út í hornspyrnutaktík Chelsea þar sem liðið ákvað að skilja fjóra menn eftir frammi þegar það varðist hornum Arsenal. Þessi taktík heppnaðist vel í fyrri hálfleik en Chelsea hætti að gera þetta í seinni hálfleik og varðist hornspyrnum með alla menn í eigin vítateig.

„Við ákváðum að breyta aðeins til og gera þetta. Það er mikilvægt að vera alltaf tilbúnir að aðlagast í mismunandi aðstæðum. "

Arteta: Persónuleg vandamál Ödegaard liðin tíð
TENGT EFNI

Arteta: Persónuleg vandamál Ödegaard liðin tíð

Alonso: Vonsviknir að ná ekki í stig
Canon

Mynd: EPA

Alonso: Vonsviknir að ná ekki í stig
Canon

Mynd: EPA

Alonso: Vonsviknir að ná ekki í stig
Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City3+59
2Arsenal3+59
3Hull City3+37
4Chelsea3+16
5Brentford3+35
6Liverpool3+25
7Newcastle3+25
8Everton3+25
9Leeds3+15
10Brighton3+34
11Man Utd3+14
12Sunderland304
13Crystal Palace3-43
14Ipswich Town3-43
15Bournemouth3-12
16Nott. Forest3-12
17Aston Villa3-51
18Tottenham3-51
19Fulham3-30
20Coventry3-50
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.