Fotbolti.net
05.09.26 - 20:19
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Lengjudeild kvenna: KR skoraði ellefu - Völsungur þarf kraftaverk

Lengjudeild kvenna: KR skoraði ellefu - Völsungur þarf kraftaverk
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Kvennaboltinn
Þrír leikir fóru fram í næst síðustu umferð Lengjudeildar kvenna í kvöld.

KR fór hamförum gegn föllnu liði Tindastóls og skoraði ellefu mörk. Kara Guðmundsdóttir var atkvæðamest með þrennu. KR er í 2. sæti, tveimur stigum á undan Haukum sem unnu ÍA í dag. KR er þá þremur stigum á undan HK sem á leik til góða gegn Selfossi á morgun.

Þá unnu deildarmeistarar Gróttu sigur á Völsungi sem er þremur stigum frá Keflavík og með mun lakari markatölu í fallbaráttunni en Keflavík á leik til góða gegn FHL á morgun.
Tindastóll 0 - 11 KR
0-1 Kara Guðmundsdóttir ('2 )
0-2 Anna Björk Kristjánsdóttir ('15 )
0-3 Kara Guðmundsdóttir ('20 )
0-4 Kara Guðmundsdóttir ('23 )
0-5 Anna Björk Kristjánsdóttir ('31 )
0-6 Emma Björt Arnarsdóttir ('53 )
0-7 Amparo Delgado Vega ('59 , sjálfsmark)
0-8 Íris Grétarsdóttir ('82 )
0-9 Emma Björt Arnarsdóttir ('84 )
0-10 Katla Guðmundsdóttir ('85 )
0-11 Þórey Björk Eyþórsdóttir ('90 )

Völsungur 1 - 3 Grótta
0-1 Nicole Douglas ('13 )
1-1 Ísabella Anna Kjartansdóttir ('35 )
1-2 Nicole Douglas ('70 )
1-3 Birna Hrólfsdóttir ('90 )

ÍA 1 - 3 Haukar
0-1 Lilja Þórdís Guðjónsdóttir ('2 )
0-2 Sara Björk Gunnarsdóttir ('6 )
0-3 Maggý Lárentsínusdóttir ('71 )
1-3 Alliyah Monica Rowe ('83 )

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Grótta17+2841
2KR17+2832
3Haukar17+430
4HK16+1327
5Selfoss16+526
6FHL16+924
7ÍA17+321
8Keflavík16+418
9Völsungur17-1015
10Tindastóll17-843
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.