Fotbolti.net
05.09.26 - 21:07
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ágúst Orri byrjaði í sigri - Ótrúleg dramatík hjá Mikael

Ágúst Orri byrjaði í sigri - Ótrúleg dramatík hjá Mikael
Canon

Mynd: Excelsior

Lífið í Hollandi byrjar vel fyrir Ágúst Orra Þorsteinsson en hann var í byrjunarliði Excelsior annan leikinn í röð þegar liðið vann öruggan sigur á Willem II.

Hann þreytti frumraun sína í 2-1 sigri á Sparta Rotterdam fyrir viku og var aftur í byrjunarliðinu í kvöld og spilaði 71 mínútu í 3-1 sigri á Willem II. Excelsior er með níu stig eftir fjórar umferðir.
Flautað af hjá Alfons og Stefáni vegna óláta
TENGT EFNI

Flautað af hjá Alfons og Stefáni vegna óláta

Willum Þór Willumsson var ónotaður varamaður þegar NEC Nijmegen tapaði 3-1 gegn Feyenoord. NEC er með sex stig eftir fjórar umferðir.

Mikael Neville Anderson spilaði allan leikinn þegar AGF gerði ótrúlegt 2-2 jafntefli gegn Silkeborg í dönsku deildinni. AGF var tveimur mörkum undir allt fram á 88. mínútu þegar liðið minnkaði muninn og skoraði sigurmarkið á þriðju mínútu í uppbótatíma. Daníel Leó Grétarsson va rónotaður varamaður.

Kristall Máni Ingason og Sævar Atli Magnússon komu inn á sem varamenn í 2-1 tapi Brann gegn Lilleström í norsku deildinni. Kjartan Már Kjartansson var ónotaður varamaður. Brann er í 7. sæti með 26 stig eftir 19 umferðir.

Breki Baldursson kom inn á sem varamaður í 2-2 jafntefli Asane gegn Hodd í næst efstu deild í Noregi. Asane er í 15. sæti með 18 stig eftir 21 umferð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.