Fotbolti.net
06.11.14 - 13:20
Elvar Geir Magnússon

Baldvin Sturluson í Val (Staðfest)

Baldvin Sturluson í Val (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Baldvin Sturluson hefur skrifað undir samning við Val en hann kemur frá Stjörnunni. Samningur hans við Hlíðarendafélagið er til þriggja ára.
Baldvin var ekki inni í myndinni hjá Íslandsmeisturum Stjörnunnar í sumar og í júlí gekk hann til liðs við Breiðablik á láni.

Baldvin er 25 ára gamall en hann getur spilað bæði á miðjunni og í vörninni. Hann skoraði eitt mark í átta leikjum með Blikum í Pepsi-deildinni í sumar. Samtals hefur Baldvin skorað níu mörk í 82 deildar og bikarleikjum með Stjörnunni frá því árið 2008 þegar hann spilaði sinn fyrsta leik.

Eins og fram kom á Fótbolti.net í gær hefur Svíinn Billy Berntsson yfirgefið herbúðir Vals og ekki er ólíklegt að Baldvin taki hans stöðu.

Baldvin er fyrsti leikmaðurinn sem Valur fær til sín eftir að Ólafur Jóhannesson var ráðinn þjálfari liðsins,
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.