06.11.14 - 18:52
Magnús Már Einarsson
Hörður Fannar í KR (Staðfest)

Hörður Fannar Björgvinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hörður Fannar Björgvinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR hefur fengið markvörðinn Hörð Fannar Björgvinsson í sínar raðir frá Fram en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið í dag.
,,Við erum ánægðir með að krækja í efnilegasta markvörð landsins,\" sagði Bjarni Guðjónsson þjálfari KR við Fótbolta.net í kvöld.

Bjarni fékk Hörð í Fram frá Stjörnunni fyrir ári síðan en markvörðurinn ungi spilaði fimm leiki í Pepsi-deildinni í sumar.
Hörður gerði þriggja ára samning við Fram en var með ákvæði um riftun sem hann ákvað að nýta sér. Hann er áttundi leikmaðurinn sem fer frá Fram síðan liðið féll úr Pepsi-deildinni.
Hörður er fæddur árið 1997 og er því ennþá á miðári í 2. flokki en hann á að baki leiki með U17 og U19 ára landsliði Íslands.
Eftir komu hans hafa KR-ingar þrjá markverði innan sinna raða en Stefán Logi Magnússon og Sindri Snær Jensson verða báðir áfram hjá félaginu.