Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   mið 06. nóvember 2019 17:00
Magnús Már Einarsson
Joey Barton fyrir rétt næsta sumar - Neitar sök
Mynd: Getty Images
Joey Barton, stjóri Fleetwood Town, mun fara fyrir rétt 1. júní á næsta ári.

Barton er sakaður um að hafa hrint Daniel Stendel, stjóra Barnsley, eftir 4-2 tap Fleetwood í leik liðanna í apríl síðastliðnum.

Stendel er sagður hafa misst tönn og dómstólar munu nú taka málið fyrir.

Barton neitar sjálfur sök en réttarhöld fara fram á næsta ári.

Hinn 37 ára gamli Barton tók við Fleetwood sumarið 2018 en um er að ræða fyrsta stjórastarf hans eftir litríkan feril sem leikmaður.
Athugasemdir
banner
banner