Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 06. nóvember 2019 14:32
Magnús Már Einarsson
Sean Cox mætir á leik Liverpool og Manchester City
Mynd: Skjáskot
Sean Cox, stuðningsmaður Liverpool, verður sérstakur gestur félagsins á toppslagnum gegn Manchester City um helgina.

Eitt og hálft ár er síðan Cox slasaðist alvarlega þegar Simone Mastrelli, stuðningsmaður Roma, réðst á hann fyrir utan Anfield heimavöll Liverpool.

Cox var í lífshættu um tíma en hann varð fyrir alvarlegum heilaskaða í árásinni.

Cox hefur síðan þá verið í endurhæfingu í heimalandi sínu Írlandi sem og í Sheffield á Englandi.

Mastrelli var í febrúar síðastliðnum dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi eftir árásina.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner