Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 06. nóvember 2019 17:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sjáðu laglegt jöfnunarmark Vitoria gegn Arsenal
Mynd: Getty Images
Vtioria krækti í stig gegn Arsenal á heimavelli í leik liðanna í Evrópudeildinni í dag.

Skhodran Mustafi kom Arsenal yfir þegar um tíu mínútur lifðu leiks. Mustafi skallaði aukaspyrnu Nicolas Pepe í netið.

Vitoria sótti og sótti í restina og náði inn jöfnunarmarki á fyrstu mínútu uppbótartíma. Fyrirgjöf barst út í teiginn þar sem Rochina kom boltanum á fjærstöngina. Þar var Bruno Duarte tilbúinn og skoraði með skemmtilegri bakfallsspyrnu.

Jafnteflið þýðir að Arsenal hefur tapað niður forskoti í síðustu fjórum leikjum sínum.

Markið og undirbúninginn má sjá hér.
Athugasemdir
banner
banner
banner