Fotbolti.net
06.11.26 - 14:12
Elvar Geir Magnússon

Baleba spilar ekki næstu vikurnar

Baleba spilar ekki næstu vikurnar
Canon

Mynd: EPA

Michael Carrick, ustjóri Manchester United, tjáði sig um meiðsli Carlos Baleba og Patrick Dorgu á fréttamannafundi í dag.

Baleba meiddist í upphafi síðari hálfleiks í sigrinum á Roma, þegar hann var kominn í skotstöðu inni í vítateignum. Hann fann þá skyndilega fyrir miklum sársauka aftan í læri og þurfti að yfirgefa völlinn.

„Við vitum ekki nákvæmlega hversu lengi Carlos verður frá en það verða nokkrar vikur. Hann þarf lengri tíma en landsleikjahléið. Patrick hefur æft aðeins í þessari viku en mjög lítið. Við verðum að vera þolinmóð með hann," segir Carrick.

„Hann er hægt og rólega að komast aftur til okkar, svo við verðum að sjá hvort hann geti verið með okkur um helgina eða ekki.“
United leikur gegn Aston Villa á sunnudag og er það talinn lykilleikur upp á framtíð Michael Carrick.

Manchester United er aðeins með sjö stig eftir níu leiki í ensku úrvalsdeildinni. Þetta er versta byrjun þeirra í sögu keppninnar.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.