06.11.26 - 12:00
Enski boltinn
Vann sér inn velvilja en kastaði honum frá sér

Lisandro Martinez.

Mynd: EPA

Erik ten Hag, fyrrum stjóri Manchester United.

Mynd: EPA

Lisandro Martinez.

Mynd: EPA
Lisandro Martínez átti hörmungarleik fyrir Manchester United gegn Chelsea um síðustu helgi. United spilaði vel í fyrri hálfleiknum en í seinni hálfleik varði Martínez illa, fékk á sig klaufalegt víti og var rekinn af velli.
Stuðningsmenn Man Utd eru að verða komnir með nóg af Argentínumanninum.

„Hann var búinn að vinna sér inn einhvern góðavilja með þessu viðtali sem hann fór í um daginn," sagði Haraldur Örn Haraldsson í Enski boltinn hlaðvarpinu hér á Fótbolta.net og átti þar við viðtal sem Martinez fór í eftir leik Manchester United við Atletico Madrid í Meistaradeildinni. Þar gagnrýndi Martinez þá sem stýra United.
„Stuðninsmenn voru kannski farnir að fýla hann meira, en hann kastar því frá sér."
„Hann verður að líta í spegil," sagði Magnús Atlason.
Samningur Martínez við Man Utd rennur út eftir tímabilið og er búist við að hann fari á frjálsri sölu. Hann er enn eitt dæmið um slæm leikmannaviðskipti Man Utd síðustu árin en það var tekið saman á dögunum að ekkert félag er verra á leikmannamarkaðnum.
„Erik ten Hag á sitt að segja með það," sagði Magnús. „Martínez er enn einn Ten Hag leikmaðurinn sem var fenginn inn sem er annað hvort lélegur eða heimskur."
Hægt er að hlusta á alla umræðuna í spilaranum hér fyrir neðan eða á hlaðvarpsveitum.

TENGT EFNI
Man Utd lélegasta félag Evrópu í leikmannaviðskiptum