06.11.26 - 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Heimir fylgist betur með leikmönnum eftir leikina gegn Ísrael

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það gekk mikið á í síðasta landsliðsglugga hjá írska landsliðinu sem er undir stjórn Heimis Hallgrímssonar.
Írar voru ekki sáttir með að spila gegn Ísraelum. Leikmenn héldu atkvæðagreiðslu um hvort þeir ætluðu að mæta í seinni leikinn og niðurstaðan var sú að markvörðurinn Gavin Bazunu gaf ekki kost á sér.

Þá voru ísraelar mjög reiðir yfir ummælum Heimis þar sem hann sagði Íra vera að fara að spila 'gegn þjóðarmorði'.
Írland spilar gegn Austurríki (14. nóvember) og Kósovó (17. nóvember). Heimir segir að hann hafi fylgst betur með írsku leikmönnunum eftir leikina gegn Ísrael.
„Þetta voru sérstakar aðstæður. Ég hringi ekki oft í leikmenn en ég reyni að horfa á æfingar milli leikja meira en ég gerði áður," sagði Heimir.
„Allir hafa líklega unnið úr því sem gerðist og yfirgefið það. Ég er ánægður að leikmennirnir hafi tekist á við þetta á sinn hátt. Það voru leikmenn sem hafa ekki tekið forystuhlutverk og stigu upp í þessum æfingabúðum.“
„Ég gaf þeim mikið hrós fyrir að segja sína skoðun. Hópurinn þekkir hvorn annan mun betur og það er mjög gott varðandi framhaldið."