Fotbolti.net
06.11.26 - 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Arnar Gunnlaugs: Jóhann Berg kveður sem goðsögn

Með fyrirliðabandið á Wembley.

Með fyrirliðabandið á Wembley.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
Jóhann Berg Guðmundsson tilkynnti í síðasta mánuði að skórnir væru komnir á hilluna. Jóhann átti farsælan feril, spilaði í atvinnumennsku í Hollandi, á Englandi og í Mið-Austurlöndum. Hann lék alls 162 leiki í ensku úrvalsdeildinni og skoraði tíu mörk.

Jóhann Berg lék 102 landsleiki á ferlinum og skoraði átta mörk. Hann var lykilmaður í landsliðinu þegar það fór bæði á EM 2016 og HM 2018. Hans síðasti leikur á ferlinum var vináttuleikur gegn Mexíkó með íslenska landsliðinu.

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari landsliðsins, var spurður út í Jóhann Berg á fréttamannafundi í vikunni.
Jóhann Berg leggur skóna á hilluna
TENGT EFNI

Jóhann Berg leggur skóna á hilluna

„Ég hitti hann á golfmóti í sumar, hann var alveg helsáttur. Síðasti leikurinn var á móti Mexíkó í mjög skemmtilegu verkefni í febrúar. Það var samkomulag um að hann myndi spila þann leik til að gefa sér meiri von um að ná ásættanlegum samningi í spennandi verkefni. En því fór sem fór."

„Hann, Gylfi, Aron Einar og þessir strákar, þetta eru goðsagnir í íslenskum fótbolta. Hans ferill er búinn að vera frábær. Það sem einkenndi hann er hversu fljótur hann var að átta sig á því að hann gæti ekki verið einhliða leikmaður. Við munum eftir honum með Blikunum skorandi mörk hægri vinstri og kannski ekki að spila einhvern geggjaðan varnarleik, en svo breyttist hann í varnar kantmann sem hjálpaði okkar leikkerfi. Úr varð frábær leikmaður sem þjónaði okkur mjög vel og átti giftusamlegan feril; spilaðii í fullt af löndum og þ.á.m. með Burnley á Englandi. Ég held að hann geti gengið mjög sáttur frá borði,"
sagði landsliðsþjálfarinn.
Lagði skóna á hilluna í síðasta mánuði.

Lagði skóna á hilluna í síðasta mánuði.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Arnar og Jói Berg

Arnar og Jói Berg

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.