Fotbolti.net
06.11.26 - 14:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Gummi Magg spáir í 10. umferð ensku úrvalsdeildarinnar

Gummi er mættur til starfa við þjálfun hjá Val.

Gummi er mættur til starfa við þjálfun hjá Val.

Canon

Mynd: Valur

Spámaður
Tíunda umferð ensku úrvalsdeildarinnar fer af stað í kvöld. Guðmundur Magnússon, sem lagði nýverið skóna á hilluna, fékk það verkefni að spá í leikina.
Gummi Magg leggur skóna á hilluna
TENGT EFNI

Gummi Magg leggur skóna á hilluna

Everton 2 - 0 Coventry (20:00 í kvöld)
Það er erfitt að fara á Hill Dickinson og ætla sér að sækja eitthvað þaðan. Everton-liðinu líður vel á heimavelli og ætti ekki að eiga í vandræðum með Frank Lampard og félaga. Tarkowski skorar með skalla eftir hornspyrnu og Barry potar einu marki inn.

Leeds 3 - 2 Tottenham (12:30 á morgun)
Elland Road er staðurinn. Hádegisleikur og mikil stemning. Tottenham hefur gengið betur að undanförnu en á eftir að misstíga sig hér. Calvert-Lewin skorar tvö mörk og Ampadu bætir við einu með langskoti. Maddison skorar úr aukaspyrnu og Kudus gerir eitt fyrir Spurs.

Fulham 2 - 2 Newcastle (15:00 á morgun)
Það hefur verið ströggl hjá Newcastle-liðinu undir nýjum stjóra. Þeim tekst þó að klóra í bakkann gegn Fulham og næla sér í eitt gott stig á útivelli. Iwobi og King skora fyrir Fulham, en Barnes setur boltann með snuddu í fjærhornið og Elanga sleppur einn inn fyrir vörnina og skorar.

Arsenal 4 - 0 Hull (15:00 á morgun)
Leikirnir gerast ekki þægilegri en þessi. Arsenal-menn verða með mikla yfirburði í leiknum. Havertz skorar tvö mörk og Bruno og Gabriel bæta við sínu hvoru markinu.

Nottingham Forest 1 - 3 Man City (17:30 á morgun)
Hungraðir City-menn mæta til leiks og vinna Forest-liðið. Gengi Forest hefur verið hörmulegt og engin breyting verður á því hér. Haaland skorar sín klassísku tvö mörk og Foden bætir við einu. Sigurður Bjartur Hallsson þeirra Nottingham-manna, Liam Delap, skorar þó eitt mark af harðfylgi fyrir heimamenn.

Ipswich 1 - 2 Bournemouth (14:00 á sunnudag)
Bournemouth er einfaldlega með betra lið og vinnur sannfærandi sigur, þótt munurinn verði aðeins eitt mark.

Sunderland 2 - 3 Chelsea (14:00 á sunnudag)
Tvö skemmtileg lið mætast hér. Brobbey skorar tvö mörk fyrir Sunderland, en Estêvão og M. Rogers, tvívegis, skora fyrir Chelsea.

Brighton 2 - 1 Brentford (14:00 á sunnudag)
Brighton hefur staðið sig vel og heldur því áfram á heimavelli. Þetta verður erfiður leikur en heimamenn ýta þessu yfir línuna.

Crystal Palace 2 - 2 Liverpool (14:00 á sunnudag)
Það er erfitt að fara á Selhurst Park, hvað þá eftir vonbrigðin í Tyrklandi í miðri viku. Jafnteflisfnykur er af þessum leik. Gakpo og Isak skora fyrir Liverpool.

Man Utd 1 - 3 Aston Villa (16:30 á sunnudag)
Þrátt fyrir sigurinn á Roma í vikunni sé ég ekki mína menn í Manchester United eiga roð í Aston Villa. Það verður áhugavert að sjá hvernig Carrick stillir upp vörninni en því miður held ég að hún verði liðinu að falli, enn og aftur. Aston Villa hefur heillað og Unai Emery virðist vera með allt á hreinu. Hann sýnir forráðamönnum Manchester United hvað í honum býr og þeir reyna í kjölfarið að fá hann til að skrifa undir samning við félagið beint eftir leik. Emery er hins vegar það klókur maður að hann vill hvorki eyðileggja ferilinn sinn né orðspor sitt og segir því: Nei takk!

Fyrri spámenn:
Aron Valur (9 réttir)
Stefan Ljubicic (6 réttir)
Líf van Bemmel (5 réttir)
Gaui Lýðs (5 réttir)
Dom Ankers (5 réttir)
Gunni Birgis (5 réttir)
Gyrðir Hrafn (4 réttir)
Aron Snær (4 réttir)
Hjammi (4 réttir)
Gummi spáir tveimur mörkum frá Calvert-Lewin.

Gummi spáir tveimur mörkum frá Calvert-Lewin.

Canon

Mynd: EPA

Arsenal mætir Hull á morgun.

Arsenal mætir Hull á morgun.

Canon

Mynd: EPA

Sigurður Bjartur Hallsson þeirra Nottingham Forest manna.

Sigurður Bjartur Hallsson þeirra Nottingham Forest manna.

Canon

Mynd: Nottingham Forest

Á Man Utd möguleika gegn Aston Villa?

Á Man Utd möguleika gegn Aston Villa?

Canon

Mynd: EPA

Unai Emery.

Unai Emery.

Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.