Fotbolti.net
06.11.26 - 17:12
Ívan Guðjón Baldursson

Yfirlýsing frá leikmönnum Þórs/KA

Yfirlýsing frá leikmönnum Þórs/KA
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Kvennaboltinn
Leikmenn meistaraflokks Þórs/KA hafa gefið frá sér yfirlýsingu eftir að KA tilkynnti um að slíta samstarfi sínu við Þór í kvennaboltanum.
KA slítur samstarfinu við Þór
TENGT EFNI

KA slítur samstarfinu við Þór

Þór/KA hefur unnið tvo Íslandsmeistaratitla á 28 árum og tókst að forðast fall á ævintýralegan hátt á lokahnykk deildartímabilsins í Bestu deildinni í haust.

Yfirlýsing frá leikmönnum meistaraflokks Þórs/KA:
Eftir 28 keppnistímabil heyrir félagið okkar sögunni til: 26 ár í efstu deild, tveir Íslandsmeistaratitlar, Evrópuleikir og ótal minningar.

Með þungum huga tökum við leikmenn meistaraflokks Þórs/KA á móti þeim fréttum að KA hafi ákveðið að slíta samstarfi félaganna. Ákvörðunin er mikil vonbrigði, ekki bara niðurstaðan heldur einnig framkvæmd hennar. Við í félaginu höfum staðið saman í gegnum bæði súrt og sætt, barist nýlega fyrir sæti okkar í Bestu deildinni og horft bjartsýnar til framtíðar með mikinn metnað fyrir komandi tímum. Við höfum lagt ómælda vinnu, tíma og ástríðu í þetta verkefni og teljum okkur eiga skilið að vera sýnd sú virðing að fá upplýsingar og eiga samtal um ákvarðanir sem hafa bein áhrif á okkur.

Nú tekur við nýr kafli og við horfum fram á bjarta tíma. Það sem situr eftir er ekki árangur eða titlar, heldur fólkið: leikmenn, þjálfarar, stjórnarmenn, sjálfboðaliðar, styrktaraðilar og stuðningsmenn. Fólk sem hefur lagt líf og sál í félagið okkar. Við ykkur viljum við segja takk. Takk fyrir vinnuna, stuðninginn og styrkinn. Takk fyrir allt sem þið hafið gefið okkur. Stuðningur ykkar hefur alltaf skipt okkur máli.

Við vonum að þið fylgið okkur áfram inn í nýjan kafla, nýtt upphaf, nýjar áskoranir og ný markmið. Sjáumst á vellinum!
Yfirlýsing frá leikmönnum Þórs/KA
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Yfirlýsing frá leikmönnum Þórs/KA
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Besta kvenna - Neðri hluti

#LiðLmunStig
1Fram21-1526
2Þór/KA21-225
3Valur21-924
4Víkingur R.21-1322
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.