06.12.14 - 15:59
Magnús Már Einarsson
Halldór Orri í Stjörnuna (Staðfest)

Halldór Orri er kominn heim.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Halldór Orri er kominn heim.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Halldór Orri Björnsson hefur gengið til liðs við Stjörnuna á nýjan leik en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið í dag. Þetta kemur fram á vef Silfurskeiðarinnar.
,,Silfurskeiðin býður Halldór Orra hjartanlega velkominn heim í Garðabæinn og getur ekki beðið eftir að sjá glókollinn leika listir sínar fyrir félagið á ný. Einnig er sérstakt ánægjuefni að geta dustað rykið af einu ástsælasta stuðningslagi Silfurskeiðarinnar,\" segir á heimasíðu Silfurskeiðarinnar.
Hinn 27 ára gamli Halldór Orri hefur æft og spilað æfingaleiki með Stjörnunni undanfarnar vikur og nú hefur hann gengið frá samningi við félagið.
Halldór Orri er uppalinn Stjörnumaður og hann var í lykilhlutverki hjá liðinu í mörg ár áður en hann samdi við Falkenbergs FF í sænsku úrvalsdeildinni síðastliðið vetur.
Halldór Orri fékk lítið að spila hjá Falkenbergs og hann er nú mættur í Garðabæinn á nýjan leik.

Heimild: Silfurskeiðin