06.12.14 - 13:08
Arnar Geir Halldórsson
Þorvaldur Örlygs tekur við U19 (Staðfest)

Þorvaldur Örlygsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorvaldur Örlygsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KSÍ tilkynnti í dag nýjan þjálfara fyrir U19 ára landslið karla þegar Akureyringurinn Þorvaldur Örlygsson gerði tveggja ára samning.
Þorvaldur hefur getið af sér gott orð sem þjálfari á undanförnum árum en hann átti frábæran feril sem leikmaður þar sem hann lék lengi vel í ensku úrvalsdeildinni.
Þá lék Þorvaldur 41 A-landsleik og skoraði í þeim 7 mörk.
Þorvaldur stýrði Fram í fimm ár en áður hafði hann stýrt uppeldisfélagi sínu, KA og Fjarðabyggð. Þorvaldur þjálfar nú HK og mun sinna því starfi samhliða U19 ára landsliðinu.